1.2.2007 | 12:32
ENGIN UPPGERÐARHÓGVÆRÐ - LAY LOW AÐ SJÁLFSÖGÐU VINSÆLUST
Ég horði á afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna. Og ég tek heilshugar undir orð Ásgerðar Júníusdóttur söngkonu sem sagði í sjónkanum í gærkvöldi, þegar rætt var við tilnefnda listamenn, eitthvað á þá leið: að það væri alltaf gaman að fylgjast með konum sem væru að semja sína eigin tónlist og sjá þær standa með sínu.
Ég dansaði einu sinni við Lay Low/ Lovísu á Sirkus og við töluðum um Sri Lanka og textagerð. Frábærlega spennnandi listamaður. Hógværðin er ekta. Engin uppgerðarhógværð einsog skáldið Dagur Sigurðarson talaði oft um að væri einkenni á Íslendingum!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.